gussan.bloggar.is
Farin og flutt !!!Guđný Ţorbjörg Klemenzdóttir
Ég er búin að flytja bloggið mitt... gafst upp á þessu bloggkerfi.Nýja bloggið mitt er www.gussatobba.blogspot.com
Kíkið á mig þar
Guðný
Farin !!!!Guđný Ţorbjörg Klemenzdóttir
Úff... er rétt að ná að hætta að skæla núna eftir að ég fór með krakkana í morgun. Þó ég sé nú stundum þreytt á þeim þá skæli ég eins og krakki þegar ég fer frá þeim. Ekki misskilja mig... það verður þokkalega miklu skemmtilegra hjá þeim með ömmu og afa heldur en nokkru sinni með okkur svona í gráum hversdeginum. Þau ætla að fara að sigla í kvöld og tékka á Yoko Ono ljósinu og svo á að elda hafragraut á hverjum morgni skilst mér.En annars, þá er ég bara að pakka og taka til svo það sé nú ekki allt á hvolfi hérna þegar mamma og pabbi taka við.....mamma stoppaði mig nú af samt þegar ég ætlaði að fara að versla í matinn líka.
Nú þarf ég bara að setja golfskóna niður og snyrtidótið og þá er ég tilbúin. Ég ætlaði að fara í skólann í morgun en í gærkvöldi ákvað ég að sleppa því, það var einhvernveginn allt eftir og ég hefði örugglega ekki sofið fyrir stressi í nótt.
Búin að raka loðnuna af leggjunum, fara í lit og plokk og klippingu og er good to go.
Blogga kannski úti ef mér leiðist
Einn sólgleraugnakarl svona bara afþví að ég er að fara í sólina í ORLANDO BABY
Blæjó (er alltaf að lenda í þessu.... ætla að segja bless og bæ og það kemur blæ....)
Guss guss
Danski var ţađ heillin !!!!Guđný Ţorbjörg Klemenzdóttir
Haldiði að kerlingin hafi ekki bara drifið sig á danska. Eiginlega bara óvart meira að segja!!! Ég ákvað á sunnudaginn að prófa að vera einn dag á danska á mánudaginn og rifja þetta upp..Ætlaði síðan að byrja á fullu þegar sukkið úti í Orlando væri búið. Nema hvað... nú bara tími ég ekki að hætta. Er búin að vera ÓGEÐSLEGA dugleg og það svínvirkar. Ókei... ég veit að þetta er mest megnis vökvi sem fer svona fyrst en meðan vigtin fer niður þá er mér alveg sama hvað það er sem fer.Ég verð nú að viðurkenna að ég á í pínu erfiðleikum með að hesthúsa öllu þessu grænmeti....er komin með hálfgerða velgju þegar ég er búin með ca 250 gr. En niður fer það samt og þetta gengur rosa vel. Er samt ekki nógu dugleg að drekka vatn... þarf að herða mig í því.
Annars held ég að nörrinn ég sé að smitast af öllum bóhemtýpunum í skólanum því ég drekk kaffi núna eins og meðal ljóðskáld.... en reyki þó ekki :-)
Ég er með eitthvað æði fyrir kaffi. Kaffikannan mín sem við fengum í innflutningsgjöf þegar við byrjuðum að búa 1997 lítur út eins og ný því hún er bara notuð um jólin en nú verður líklega breyting á... henni er pískað út hérna hvað eftir annað!
Kannski er það líka að þegar mig langar í eitthvað (hafið þið ekki lent í því... ) þá er voða gott að fá sér gott kaffi þótt það sé enginn rjómi útí.... bara undanrenna. Er líka eitthvað svo notó að koma inn úr rigningarbarningnum úti og hita sér kaffi.
Kannski er ég bara að þroskast.....þar kom að því!
En danski virkar greinilega ! Ógó gaman að hoppa á vigtina á hverjum morgni þessa dagana (já ég vigta mig á hverjum morgni... annars gefst ég upp held ég).
Annars er ég að beila á tveimur fögum í skólanum... er mikið að spá í að geyma þau. Ég er á fullu... alltaf að læra (segir Snæsi allavega) og samt er ég ekki byrjuð að læra í þessum tveimur! Er að spá í að lengja námið um eitt ár og dreifa álaginu... fíla mig samt sem algjöran lúser....
Reyni að taka netta Pollýönnu á þetta ... ég er þó allavega lúser sem er að léttast
Bless you all
Gussan
Éggetsvosvariđţađ!Guđný Ţorbjörg Klemenzdóttir
OK.. þegar maður man varla lykilorðið inn á bloggið þá er eitthvað að!Ég er nú löglega afsökuð þessa dagana - skólinn hefur alveg ofan af fyrir mér verð ég að segja....vægt til orða tekið sko.
Allt fínt að frétta annars, ég hef allt of mikið að gera í skólanum en á þokkalega vel taminn eiginmann sem er að koma sterkur inn núna
Hann er mjög duglegur þessi elska, hann þarf að keyra Guðrúnu á leikskólann 3 morgna og sækja hana tvisvar í viku. Þá þarf hann líka að sjá til þess að það sé eitthvað í kvöldmatinn og þetta gerir hann bara með glæsibrag verð ég að segja. Mamma átti ekki til orð um daginn, þá var ég í skólanum til 19 og hún kom hingað og Snæsi var þá á fullu að taka til og elda mat og sjá um krakkana..... þetta fannst henni bara stórmerkilegt en ég minnist þess ekki að henni finnist það neitt stórmál þegar ég sé um þetta ásamt fleiru.....Geta konur verið karlrembur? Ég held að mamma þjáist af nettri karlrembu en kannski ekki meira en aðrar konur ,, á hennar aldri" (nú verður hún brjáluð....
Námið er mjög áhugavert (fyrir mig allavega), mjög fjölbreyttir kúrsar og ekki bara verið að kenna manni það sem snýr að uppgjörum heldur líka fleira sem snýr að fjármála/framkvæmda stjórn... mjög hagnýtt. Ekki bara kennt að stemma af en næsta víst að það verður brjálaður stemmari á þessu heimili þegar þetta verður allt um garð gengið (bókhaldsbrandari... alls ekki víst að allir nái honum sko....ég veit ... ég er nörri).
Nú styttist og styttist í Orlando ferð.... förum á þriðjudaginn eftir rúma viku í svona ,,fullorðinsferð". Við förum 9 saman, við tvö, Kiddi (bróðir Snæsa) og Kata (kona Kidda), Viðar (bróðir Snæsa) og Unnur (kona Viðars), Eygló (systir Snæsa) og Eggert (maður Eyglóar) og svo Nonni (enn einn bróðir Snæsa). Fullt af systkinum og mágkonum og svilkonum og bræðrum... verður örugglega rosa fínt. Þetta er allt svo hresst og skemmtilegt fólk. Planið er að sofa, liggja í sólbaði, fara í golf, fara í búðir, förum sennilega á Cirque de Soleil sýningu, strákarnir eru að pæla í að fara í svona Nascar akstursskóla í hálfan dag , og svo náttlega eta og drekka (aðallega drekka þó....).
Annars auglýsum við hér með eftir ferðafélögum í haustferðina okkar næsta haust. Við förum alltaf í 8 daga á hverju hausti barnlaus og það hefur alltaf verið frábært. Það er hægt að skila inn umsóknum hér hjá okkur og þetta verður lagt í nefnd... nei grín.. en alltaf gaman að hafa skemmtilegt fólk með!
Mamma verður með grislingana, hún er líka í orlofi núna í þýskalandi til að byggja sig upp fyrir þetta... veitir ekki af ....hahaha.
Varðandi þrítugsafmælið.... þá er ég eiginlega að renna á rassinn með að halda þetta núna og er að spá í að vera pínu spes (!!!) og halda upp á 31 árs afmælið mitt næsta sumar.... mér finnst ég hvort eð er ekki vera degi eldri en 29 núna þannig að þetta passar eiginlega bara fínt. Stefnan er tekin á lok maí byrjun júní.... (þá verð ég búin í prófum....) en formattið verður samt það sama... gamaldags PARTÝ og Birta mín... já Singstar. Ég er hvort eð er vön því að vera plötuð í annarlegu ástandi til að syngja með þér þannig að ég hlýt að meika það heima hjá mér í faðmi fyrirgefandi vina og fjölskyldumeðlima....
Ekker smá langt blogg hjá mér núna.... en þetta er líka fyrir heilan mánuð... skal reyna að vera duglegri!
Pís Át (ákvað prófa eitthvað svona rapparalegt núna... passar kannski ekki alveg við stemmarann....)
Gussa
I'm back !!!!Guđný Ţorbjörg Klemenzdóttir
Ég meina það .... hvaða blogg leti er þetta eiginlega. Ég er bara búin að vera eitthvað svo tóm blogglega séð...finnst ekkert merkilegt að gerast hjá mér.....
.... en þó er alltaf eitthvað skemmtilegt að gerast. Þannig er mál með vexti að prinsessan á heimilinu er uþb að hætta með bleyju. Hún er rosa dugleg núna, búið að vera svona upp og ofan hingað til en undanfarna daga hefur þetta gengið fínt. Um daginn sat ég með henni inni á baðherbergi og hún sat á koppinum og sagðist þurfa að kú.... (gera númer tvö):
GB: Mamma, sa kemuð engi kúkuð
M: Nú, hvað er að?
GB Ðassinn eð baða bilaðuð !
M: Æ það er nú ekki gott.....
GB: Það þaðð að keypa ný batteðí í hann!!!!!
Yndislegust!
Annars er skólinn bara að byrja á mánudaginn hjá mér. Í augnablikinu er ég ekki alveg að nenna þessu en það lagast örugglega þegar nær dregur. Ætlaði að vera geggjað dugleg að lesa en er búin að lesa alveg hálfan kafla !
Annað mál... veit einhver tölvunörd afhverju ég get ekki lesið bloggið mitt í fína nýja makkanum mínum... ég get lesið öll blogg nema mín.... þar kemur allt á síðunni nema textinn..... hver er klár á makka?
Hér gengur allt annars sinn vanagang, litli Skeggur er ósköp góður að öllu leyti nema hann er ekki alveg að skilja að stofugólfið er ekki klósett! Þetta hlýtur að koma hjá honum. Heklan okkar er að sanna enn betur fyrir okkur hversu yndisleg hún er, þvílíkt geð í hundinum! Litla dýrið hangir í skottinu á henni eða kinnunum og bítur í lappirnar á henni og hún gerir ekkert!
Nú þarf ég að fara að hugsa um þrítugsafmæli... ætlaði alltaf að halda það í haust.... og nú er komið haust víst....Ég ætlaði að halda bara svona gamaldags PARTÝ... bara nóg af búsi...Singstar og svoleiðis. Þarf að finna góðan dag í þetta....
BongóblíđaGuđný Ţorbjörg Klemenzdóttir
OHHHH... yndislegt þetta veður hérna dag eftir dag...og ekki skemmir fyrir að vera komin í SUMARFRÍStóri strumpur kom heim úr sumarbúðunum í dag og sönglar nú sálma án afláts og les í markúsarguðspjalli.....
Það er ótrúlega gott að fá hann heim þessa elsku.... við erum búin að sakna hans mikið. Nú tekur við golfnámskeið hjá honum þessa viku og svo er hann alveg laus.
Ég er nú reyndar ekki alveg komin í sumarfrí... tók að mér smá verkefni þessa vikuna en um næstu helgi er meiningin að bruna í sveitina og vera þar helst bara sem lengst. Reyndar er nýjasta viðbótin við dýragarðinn væntanleg á laugardaginn og því mikill spenningur en sjálfsagt ekkert verra fyrir greyið litla að kynnast okkur í bústaðnum... það er hvort eð er okkar annað heimili so to speak.
Við skruppum að heimsækja litlu rúsínuna og sýna Eggerti hann. Það er ekki komið endanlegt nafn á hann... við höfum hingað til kallað hann Skegg en Snæsi kom með nafnið Tindur í dag.....hvort finnst ykkur flottara? Skeggur eða Tindur? Hann er óttalegur Skeggur.. er með svona brúsk í framan en Tindur er ótrúlega flott nafn líka og svona í stíl við Heklu nafnið. Veit ekki hvað verður ofan á.
Er alveg tóm núna....meira næst
Gussan
Birdie !!!!Guđný Ţorbjörg Klemenzdóttir
Ég get svarið það ég man ekki eftir skemmtilegri afmælisdegi. Alls konar fólk sendi mér kveðjur og ég fékk fullt af gjöfum líka. Mér fannst einhvern veginn að þetta væri ekkert merkilegt afmæli en í dag finnst mér það alveg stórmerkilegt.Ég fór í vinnuna með kökur og þar var sungið fyrir mig og hún Silja mín gaf mér hvítvínsflösku. Ég hætti síðan í vinnunni á hádegi og dreif mig út í sólina.....ég sver það... meira segja veðrið var frábært! Fór heim á pallinn hjá mömmu og lagðist í sólbað. Hún Rúna mín kíkti síðan á mig með litluna sína hana Elísabetu og þær gáfu mér rós.... ekki svona blómabúðarós heldur alvöru rós til að gróðursetja í garðinum.... ótrúlega flott gjöf. Þegar þær mæðgur voru farnar kom Svava með rósir og pakka. Í pakkanum var Marimekko budda og servíettur... hrikalega sætt! Þegar þær fóru var kominn tími til að galla sig fyrir golfmótið. Það var mót hérna úti á vellinum hjá okkur og haldiði að kerlinginn hafi ekki bara brillerað! Fékk fyrsta fuglinn minn í afmælisgjöf (golfmál... ekki alvöru fugl heldur birdie...einn undir pari) Jú takk ... frekar gaman. Svo var ég í öðru sæti á mótinu yfir heldina og í fyrsta sæti í kvennaflokki....alveg gaman sko. Ég spilaði ótrúlega vel miðað við að upphafshöggin mín voru í KLESSU... gat ekkert í þeim en reddaði mér á stutta spilinu. Endaði með 38 punkta og lækkaði um 2 heila í forgjöf!!!!
Eftir golfmótið örkuðum við heim og ég skellti á kökur og hitaði ofnrétt og ma og pa, Halldór og Alda og co komu í kaffi.
Gamla er því í skýjunum núna, ef þetta er forsmekkurinn að fertugsaldrinum kvíði ég ekki neinu. Fortís ar ðe njúv þörtís segi ég....
Gussan
Dörrtí og doggíGuđný Ţorbjörg Klemenzdóttir
Engar hrukkur bættust við í nótt (hjúkk) og gráu hárin liggja vel lituð ennþá á kollinum þrátt fyrir háan aldur frúarinnar. The big 30 er víst runnið upp, miklu fyrr en mig óraði og ég get svarið það að ég er viss um að ég átti tvítugsafmæli í gær. Furðulegt hvað tíminn líður hratt.
Partíhöld dagsins byrjuðu dálítið fyrr en ég hafði ætlað þegar yndislega fjölskyldan mín stóð (og sumir m.a.s. á náttfötunum) syngjandi afmælissönginn fyrir utan svefnherbergisgluggann okkar. Þau voru klyfjuð af brauði, áleggi og tilheyrandi og ruddust að sjálfsögðu inn og slógu upp veislu. Þau klikkuðu ekki á pökkunum og ég fékk eyrnalokka og peninga frá ma og pa og stóri brói og kó gáfu mér náttkjól, armband og peninga.
Peninga !!!! hugsa sjálfsagt sumir en ég bað um peninga. Þannig er að það voru allir að spyrja hvað er hægt að gefa þér.... þú átt allt !!!! Og ég veit , það er alveg satt , það er mjög erfitt að gefa fólki eins og mér. Svo ég sagði, ef ykkur langar til að gefa mér eitthvað þá frábært, en ef þið vitið ekkert hvað það á að vera þá gefið mér bara peninga. Hver peningagjöf sem ég fæ verður dobbluð af mér og summuna ætla ég að gefa í mjög þarft málefni... meira um það seinna.
Það eru margir að velta fyrir sér hvernig Snæsi ætlar að toppa gjöfina mína. Ég get upplýst það að hann er búinn að gefa mér gjöf.... við pöntuðum hana í gær og fáum afhent um mánaðamót.... júbb pínulítill hvolpur var það heillin! Hann er algjör yndi og ég hlakka rosalega til að fjölga um einn í dýragarðinum. Reyndar eru bæði kötturinn og hundurinn í hárlosi núna og eru að gera mig nett brjálaða með því en góðu fréttirnar eru þær að litli doggí fer ekki úr hárum... það þarf að klippa hann!!!!!
Skál fyrir því
Gussan
Bifhjól og bongóGuđný Ţorbjörg Klemenzdóttir
Ótrúlegt veður sem við erum búin að fá undanfarið.. bara bongó dag eftir dag.... ótrúlega skemmtilegt!Nú get ég sagt frá afmælisgjöfinni sem ég kom bóndanum á óvart með í gær. Ég er gjörsamlega búin að vera að rifna yfir þessu undanfarna daga eða allt frá því á þriðjudag þegar ég keypti hana.
Þannig var að Snæsi er búinn að vera að velta sér upp úr mótorhjólum í HEILT ÁR núna og var uþb að gera mig GEGGJAÐA !!!! Guðný hvernig finnst þér þetta hjól? Guðný sjáðu hvað þetta er flott??? Finnst þér þetta flottara en þetta????' HAAAA ????? Mér finnst þetta allt eins.... sé engan mun, allt með tveimur hjólum og slatta af krómi.
Svo ég myndi ekki tapa glórunni yfir þessu þá ákvað ég bara að kaupa handa honum hjól.... ekki ákvörðunarfælninni fyir að fara hjá mér ég veit ... en ég hugsaði ... ókei ef hann fílar þetta ekki þá selur hann það bara!
Ég var búin að segjast ætla að gefa honum bifhjólagalla í afmælisgjöf og við fórum í gærmorgun til að kaupa hann. Halldór bróðir kom með okkur þar sem Snæsi vildi hafa hann með í ráðum. Nema hvað... við Halldór höfðum farið á þriðjudaginn og skoðað (og keypt) hjól og sölumennirnir voru með okkur í plottinu. Við mættum í gærmorgun og skoðuðum galla og þegar Snæsi fór inn í mátunarklefa laumaði sölumaðurinn lyklinum að hjólinu að mér. Plottið var að koma Snæsa síðan upp á hjólið sem stóð fyrir utan. Það var ekki málið... við gölluðum Snæsa upp, galla, hjálm, skó og hanska og sölumaðurinn sagði honum að hann ætti líka geggjað hjól handa honum. Hann fékk að fara smá hring á því og á meðan lét sölumaðurinn mig hafa skráningarvottorðið. Þegar hann kom til baka átti hann ekki til orð yfir hjólinu... fannst að geggjað en svo fór hann greyjið bara að skæla þegar ég sagði honum að ég hefði smá aukafréttir fyrir hann og sýndi honum skráningarskírteinið með hans nafni á....
Ókei... ég veit alveg hvað þið eruð að hugsa.... nú er hún alveg búin að missa það sko.....þetta er samt ekki alveg svo einfalt. Í raun leysti þetta málið mjög vel, í fyrsta lagi er Snæsi geðveikt ánægður með hjólið, það kom í ljós í gær að hann hafði farið í búðina fyrir stuttu og sest á þetta sama hjól og fannst það klikkað en gat samt ekki ákveðið sig (þetta hafði ég reyndar ekki hugmynd um) . Í öðru lagi losna ég við þessar eilífu spurningar... nú bara á hann hjól og þarf ekki að hanga meira á ebay. Í þriðja lagi leysti þetta afmælisgjafavesenið mitt núna þetta árið og svo til að toppa þetta þá næst ekki af honum brosið... hann brosir allan hringinn þessi elska og það er sko priceless !!!!
Svo bara eitt í lokin.... ég verð þítug eftir smá.... hann þarf að toppa þetta !!!!! hahahahaha !!!!
Gussan
RitstíflaGuđný Ţorbjörg Klemenzdóttir
Þokkalega ritstíflan í gangi hér undanfarið. Er ekki frá því að hún sé að bresta en ákvað af hálfgerðri skyldurækni (og háværum kröfum nokkurra ættingja) að reyna að sprengja stífluna, og koma einhverju gáfulega á blað (eða skjá).Ýmislegt merkilegt hefur gerst síðan ég bloggaði síðast....við brugðum landi undir fót (eða dekk) og skelltum okkur norður í land. Auðvitað þarf ærið tilefni til að maður dru.... sér af stað en þar stóð til að útskrifa og ferma tvö af frændsystkynum mínum. Allt í allt var þetta frábær ferð og yndislegt að koma til Akureyrar sem fyrr.
Nokkrar eru ferðirnar í bústaðinn líka orðnar, til að smíða og hafa það hyggeligt. Ekki spillir fyrir þegar góðir gestir sækja mann þar heim.
Góðir hálsar... það er komið eitt ár hjá okkur Snæsa... við áttum árs brúðkaupsafmæli þann 10. júní.... merkilegt hvað þetta hangir !!!!
Nú á laugardaginn verður minn betri helmingur síðan árinu eldri og svo ég eftir nokkra daga. Öllu merkilegra afmælið mitt þetta árið þar sem ég skipti um aldur, fer af þrítugsaldrinum yfir á þann fertugs. Get ekki sagt að ég sé mjög nervus yfir því... held að það gerist ekkert stórvægilegt... verð áfram sama ég....bara árinu eldri og dirty (thirty) !!!!
Eggert skrapp norður í viku um daginn og dvaldi í góðu yfirlæti hjá Huldu og Gústa sem voru svo góð að leyfa honum að koma. Eitthvað slettist upp á vinskapinn annað slagið en hann kom í heilu lagi heim og alveg til í að fara með Inga í sumarbúðirnar eftir rúma viku. Þeir eru að fara saman á Ástjörn og verða í 12 daga.
Júbb... eitt enn... ég er að hætta í vinnunni minni, er komin inn í Masters nám í HÍ og byrja í haust. Við Sigrún vinkona ætlum að skella okkur í þetta...
Það er nú aðeins teygjanlegt með hvenær ég hætti endanlega í vinnunni en þó í allra síðasta lagi um miðjan júlí.....þá er ég komin í frí og öll fjölskyldan líka. Þá verður gaman.... ætlum að vera eins mikið í bústaðnum og við getum en okkur langar líka að skella okkur til Eyja og skoða okkur um.
Jæja ... þetta er nú svona það sem er að frétta.....
Svosem engar stórfréttir en fréttir samt.
Gussa